Skip to content

Réttarúrræði viðskiptavina

Úrskurðarnefnd um viðskipti við fjármálafyrirtæki

Viðskiptavinir geta skotið ágreiningi til Úrskurðarnefndar um viðskipti við fjármálafyrirtæki:

Guðrúnartún 1,
105 Reykjavík,
Tölvupóstur: [email protected]  

Fylla þarf út sérstakt málskotseyðublað sem er aðgengilegt á vef nefndarinnar www.nefndir.is og senda í tölvupósti á [email protected] Nánari upplýsingar um nefndina, málskotsgjald, hverjir geta leitað til nefndarinnar o.fl. er að finna á vef nefndarinnar.

Dómstólar

Aðilar geta leitað réttar síns fyrir almennum dómstólum hafi ágreiningsefnið ekki verið undanþegið lögsögu þeirra með lögum eða samningi.

Upplýsinga- og leiðbeiningaþjónusta Fjármálaeftirlitsins

Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands starfrækir upplýsinga- og leiðbeiningaþjónustu fyrir neytendur fjármálaþjónustu. Sjá nánar á www.sedlabanki.is/fjarmalaeftirlit/ 

Vakin er athygli á upplýsingaskjali frá Evrópska bankaeftirlitinu (EBA) um rétt neytenda í íslenskri þýðingu. 

Neytendastofa

Neytendastofa er stjórnvald á sviði neytendamála sem annast framkvæmd á ýmsum lögum á sviði neytendaverndar. Á vef Neytendastofu er m.a. unnt að nálgast upplýsingar um það í hvaða tilvikum og með hvaða hætti neytendur geta leitað til stofnunarinnar, telji þeir að réttur sé á þeim brotinn. Sjá nánar á www.neytendastofa.is 

Persónuvernd

Persónuvernd annast eftirlit með framkvæmd laga um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga og úrskurðar í ágreiningsmálum á sviði persónuverndar. Á heimasíðu Persónuverndar er hægt að finna upplýsingar um með hvaða hætti er hægt að leggja fram kvörtun. Sjá nánar á www.personuvernd.is