Greiðslur á netinu og í verslun
Taktu við greiðslum í verslun og á netinu frá öllum heimshornum. Vefþjónustur Rapyd bjóða einnig upp á virðisaukandi þjónustur eins og útgáfu korta og fjölda greiðsluleiða um heim allan.
ALGENGAR SPURNINGAR
OG SVÖR VEGNA POSA
Ef um er að ræða gsm posa, þá er best að slökkva og kveikja aftur. Ef um er að ræða IP posa, þá er gott að endurræsa posa og router ef ekki dugar að endurræsa bara posa.
Ingenico posi: Þú velur F1, flettir niður (F2) þar til þú sérð Símgreiðsla, velur græna takkann.
Ingenico posi: Þú velur F1, flettir niður (F2) þar til þú sérð Endurgreiðsla og velur græna takkann. Síðan slærðu inn lykilorð söluaðila, slærð inn upphæð og ýtir á græna takkann. Ef að kortið er ekki fyrir hendi skal slá inn kortanúmerið þegar „Lesið kort“ kemur á skjáinn. Athugið að ekki er hægt að gera endurgreiðslu á debet kort.
Athugaðu hvort að posarúllan snúi rétt í tækinu ef rúllan snýr rétt, þá getur verið að verið röng tegund af rúllu sé í posanum. Gott er að klóra í pappírinn til að sjá hvort að það komi dökk rönd í pappírinn. Ef að það kemur dökk rönd, þá er réttur pappír í tækinu.
Posarúllur er hægt að fá í helstu bókabúðum, Rekstrarvörum og hjá Pappír í Hafnarfirði.
Posar notast við hitaprentun og þurfa rúllurnar því að vera svokallaðar „thermal“ rúllur.
Já, Ljósgjafinn á Akureyri er þjónustuaðili Rapyd á Norðurlandi og síminn þar er 460 7799.
Hámarksupphæðin á snertilausri færslu með korti er 7.500 kr. Hægt er að greiða hærri upphæðir með símum og snjallúrum.
Ef að þú ert nýr söluaðili eða vilt fá posa á nýjan samning þá þarftu að sækja um samstarfssamning hjá Rapyd á www.rapyd.is. Ef að þú ert þegar með samstarfssamning við Rapyd og vilt fá viðbótar posa þá óskarðu eftir slíku á netinu. Alltaf hægt að senda póst á [email protected] eða hringja á skrifstofutíma í 525 2000.
Já, það er hægt. Þú verður að hafa samband við þitt tax free fyrirtæki og þeir leiðbeina þér áfram.