UPPGJÖRSLEIÐIR
Rapyd býður söluaðilum sem hafa verið með samfellda veltu í 3 mánuði eða lengur upp á þrjár mismunandi uppgjörsleiðir, allt eftir þörfum hvers og eins.MÁNAÐARLEGT UPPGJÖR
- Færslur greiddar til söluaðila fyrst virka dag næsta mánaðar eftir að uppgjörstímabili lýkur.
- Uppgjörstímabil vegna kreditkorta er u.þ.b. 30 dagar og miðast við 22. hvers mánaðar til og með 21. næsta mánaðar.
DAGLEGT UPPGJÖR
Söluaðilar geta óskað eftur daglegum greiðslum á öllum kortategundum. Það fer eftir áhættumati Rapyd hvort beiðni um daglegt uppgjör er samþykkt af hálfu Rapyd. Í einhverjum tilvikum kann Rapyd að seinka greiðslum ávallt um ákveðinn dagafjölda til að mæta áhættu eða seinkaðri afhendingu á vöru eða þjónustu hjá söluaðila.
- Vinsamlegast athugið að greiðslur eru framkvæmdar alla virka daga en ekki um helgar eða á opinberum frídögum.
VIKULEGT UPPGJÖR
Vikulegt uppgjör er leið sem hentar þeim sem vilja fara milliveginn og fá kreditkortaveltu greidda út einu sinni í viku.
- Færslur greiddar til söluaðila vikulega, 7 síðustu dagar greiddir út.
Hringdu í síma 525-2055 eða sendu okkur póst á [email protected] til að fá nánari upplýsingar um uppgjörsleiðir sem henta þér.